Hringbraut sýnir frá fundi Samtaka ferðaþjónustunnar með forystumönnum stjórnmálaflokkanna sem fram fór í Kaldalóni í Hörpu þriðjudaginn 18, Október, kl. 17.00 á laugardag og endursýnt kl. 17.00 á sunndag.
Á fundinum var staða ferðaþjónustunnar rædd og þau tækifæri og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þeirri vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er.
Hver er stefna stjórnmálaflokkanna þegar kemur að ferðaþjónustu? Hvernig sjá frambjóðendur fyrir sér að festa ferðaþjónustuna í sessi til langrar framtíðar? Þessar og fleiri spurningar voru bornar upp á fundinum.
Á fundinum flutti Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, ávarp áður en haldið var í pallborðsumræður sem Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri samtakanna og Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi stýrðu.
Þeir frambjóðendur sem tóku þátt í pallborðsumræðum voru Helgi Hrafn Gunnarsson, forystumaður Pírata, Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Jóhanna Vigdís Guðmundsdótti, Samfylkingu, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Sjálfstæðisflokki.