Stjórnmálaskýrendur í Frakklandi segja að ekki skiptir neinu máli hve fáir mættu á kjörstað í þingkosningunum í Frakklandi sl. sunnudag - Emmanuel Macron er öruggur með yfirgnæfandi þingmeirihluta.
Nú má segja að heiðarlegur og hraðfara maður hafir erft stöðu Francois Holland - en ekki valdaleysi Francois Holland. Nú er styrkur Frakklands talsvert meiri en útlit var fyrir í ársbyrjun.
Embættistaka Francois Holland á sínum tíma vakti illa dulinn kvíða meðal bandamanna Frakklands. Þessir bandamenn töldu að Francois Holland væri mótaður einsýnni stefnu hins dygga franska sósíalista og óttuðust að hann og stjórn hans mundi hafa að engu skuldbindingar Frakka við sameiginleg markmið. Sá ótti reyndist ástæðulaus. Stórn Francois Holland stóð við allar skuldbindingar fyrirrennara sinna í alþjóðamálum og gott betur.
Um Emmanuel Macron má segja að líkast til myndast aftur þýskt-franskt bandalag á borð við það sem Charles de Gaulle og Konrad Adenauer mynduðu til mótvægis við áhrifavald Bandaríkjanna og Stóra-Bretlands. Bandalag til að gera ESB Evrópu að vaxandi efnahagslegri og pólitískri heild sem er nógu voldug til að svara Bandaríkjunum og Stóra-Bretlandi fullum hálsi og getur boðið Rússlandi Kína og Indlandi byrginn.
Undir veikri stjórn Francois Holland glataði Frakkland óvenjugóðu tækifæri til forystu í ESB Evrópu. Snúi Bandaríkin baki við Evrópu glata Bandaríkin miklu af því siðferðilega áliti sem þau hafa áunnið sér.
Djarfir talsmenn evrópskrar einingar - eins og Angela Merkel kanslari og Emmanuel Macron forseti - fá líkast til þorra ESB smáþjóða Vestur -Evrópu til að játast undir forystu Frakklands og Þýskalands. Ef sú forysta þá stendur til boða.
Þingkosningar í haust í Þýsklandi geta skilað Angelu Merkel traustum þingmeirihluta. Emmanuel Macron býður fram forustu sína. Hvað gerir Angela Merkel ef hún sigrar í haust?
Er Emmanuel Macron eins og Charles De Caule sjálfsforræði Frakklands ákaflega viðkvæmt?
Ef þýskt - franskt bandalag verður til eftir kosningarnar í Þýskalandi í haust verða ríkisoddvitar Frakklands og Þýsklands að skilja að eining ESB Evrópu er reist á samvinnu ESB þjóðanna sjálfra.
Eining ESB Evrópu er ekki reist á samvinnu ríkissttjórna sem sífellt eru á verði um efnahagslegt og hernaðarlegt sjálfstæði sitt.
rtá
rtá