Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra sagði í þættinum Mannamáli á Hringbraut þann 16.febúar síðastliðinn að hann hefði ekki á stefnuskrá sinni að setja meira af heilbrigðisþjónustunni í hendur einkaaðila. Hann benti á að um 30 prósent af heibrigðisþjónustunni væri rekin af öðrum aðilum en ríkinu, einkaaðilum og sjálfseignarstofnunum.
„Margt af því hefur verið mjög gott en ég hef engan áhuga á því að gera stórar breytingar á því eða að einkavæða eitthvað sérstaklega meira, þvert á móti”, sagði Óttarr í viðtalinu.
Brot af því er hér:
Óttarr segir ekki erfitt að ganga inn í málaflokk heilbrigðismála enda fair málaflokkar þar sem breið samastaða sé um að gera betur.