Ríkisstjórnin ætlar að endurgreiða bókaútgefendum 25% af öllum beinum kostnaði við útgáfu bóka frá og með 1. janúar 2019, segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í samtali viðmbl.is. Hún mun leggja fram frumvarp þessa efnis í næstu viku.
„Í raun og veru er þessi stuðningur meiri en að afnema virðisaukaskattinn,“ segir Lilja í samtali við mbl.is, en í fjármálafrumvarpi ríkisstjórnarinnar var greint frá því að áform um afnám VSK af bókum, sem ríkisstjórnin lofaði í stjórnarsáttmála sínum, hefðu verið lögð á hilluna. Ráðherra segir að bókaútgefendur séu betur settir með þessum beina stuðningi.
Nánar á
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/09/11/endurgreida_25_prosent_kostnadar/