Í gærkvöldi hófst skjálftahrina í austurbrún Kötluöskjunnar. Stærsti skjálftinn mældist 3,6 að stærð. Engir aðrir skjáftar yfir 3,0 voru í hrinunni. Í heildina mældust tíu skjálftar á svæðinu.
Katla er stór megineldstöð og er ein stærsta megineldstöð landsins. Eldstöðin er um þrjátíu kílómetrar í þvermál. Í miðju eldstöðvarinnar er Kötluaskjan um eitt hundrað ferkílómetar að stærð og allt að sjö hundruð metra djúp. Í henni er víðast þykkur ís.
Gos í Körlu hafa að meðaltali orðið á fjörutíu til áttatíu ára fresti. Veðurstofa Íslands segir að engin merki eru um að það sé að koma eldgos.
rtá