Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra segir að ekki verði breytt um gjaldmiðil nema það eigi sér aðdraganda. Benedikt talar fyrir lausn sem dregur úr sveiflum á gengi krónunnar. Hvort sem það verður myntráð eða eitthvað annað. Hann bætir við að aðdragandinn felist meðal annars í því að menn tali um málin.
Fjármálaráðherrann segir að í ríkisstjórnarsáttmálanum standi að ríkisstjórnarflokkarnir vilji finna lausn sem dragi úr sveiflum krónunnar. Lausnin getur verið myntráð. Ef menn benda á aðrar lausnir hefur Benedikt áhuga á því. Frá þessu segir Fréttablaðið.
Nánar www.frettabladid.is