Sameiginlegur fundur Landsstjórnar og þingflokks Framsóknarflokksins var haldinn um helgina. Þar var samþykkt að leggja höfuðáherslu á þá stefnu að auðlindir skuli vera í þjóðareign.
Sigurður Ingi, formaður Framsóknarflokksins og sveita- og samgönguráðherra, segir jafnframt sölu á mikilvægum innviðum þjóðarinnar ekki koma til greina. „Og við höfum auðvitað tekið eftir og hlustað eftir umræðu landsmanna um áhyggjur af því að ýmsir séu að seilast í bæði eignir og aðra hluti sem tengjast auðlindum að einhverju leyti eða eru mjög mikilvægir innviðir, kannski einu innviðirnir eins og Leifsstöð. Þess vegna erum við á þeirri skoðun, höfum reyndar alltaf verið en erum bara að árétta hana í þessari umræðu að það sé mikilvægt að hún sé í eigu ríkisins.“
Þetta er aðeins brot úr frétt RÚV. Fréttina í heild sinni má lesa hér.