Einkavæðing og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er pólitískt álitaefni. Í byrjun Þjóðbrautar kemur Gunnar Ármannsson, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands (LÍ) en hann skrifar um “hollensku leiðina” í ritstjórnarpistli Læknablaðsins. Gunnar hefur í mörg ár komið að heilbrigðiskerfinu; sem athafnamaður sjúkrahótels sem þó ekki varð af; sem framkvæmdastjóri LÍ og þegar hann greindist sjálfur með hvítblæði og eiginkona hans einnig en krabbamein lagði hana að velli á meðan beðið var eftir nýjum krabbameinslyfjum.
Birgir Jakobsson landlæknir sest svo hjá Lindu og fer yfir umdeilt mál varðandi Klíníkina í Ármúla og hvernig það mál varpar ljósi á stöðu heilbrigðismála hér á landi. Birgir tekur fram að hann og heilbrigðisráðherra séu ekki á öndverðum meiði og hann sé ekki andvígur Klíníkinni. Hins vegar skilgreini Landlæknir Klínikina sem sjúkrahús á meðan lögfræðingar ráðuneytisins segi þar fara fram samsvarandi starfsemi og á læknastofum líkt og Domus Medica, Orkuhúsið og fleiri og fleiri sem nú eru starfandi. Þegar svo er, sé erfitt fyrir yfirvöld að hafa stjórn á því hvert opinbert fjármagn rennur til heilbrigðismála.
Reykjavíkurdætur koma líka við í þættinum og Símon Jón Jóhannsson þjóðfræðingur sem hefur að þessu sinni gefið út bók um fyrirboða og tákn.
Þjóðbraut er á dagskrá frá 21 til 22 og svo endursýnd. Umsjónarmaður er Linda Blöndal.