\"Samfélagið er að vakna til lífs eftir vætusamt sumar. Stutt er þar til þing kemur saman. Mörg hitamál bíða afgreiðslu\", skrifar Kristín Þorsteinsdóttir í Frettablaðið.
\"Á síðustu metrum þingsins í vor ætlaði stjórnarmeirihlutinn að þvinga í gegn lækkun á veiðigjöldum. Gert var ráð fyrir 17 prósenta lækkun, innheimt veiðigjöld áttu að fara úr 10 milljörðum, í 8,3 milljarða. Stjórnarandstaðan mótmælti harðlega.
Allt var þetta gert í miklum flýti. Skyndileg frestun málsins var í stíl við flumbrulegan undirbúninginn. Fyrirheit voru gefin um að málið yrði tekið upp að nýju í haust og þá fengi það almennilega umfjöllun. Leggi ríkisstjórnin í að setja málið á dagskrá á ný þarf að standa við fyrirheitin\", stendur enn fremur í grein Kristínar.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180818955/ekki-a-nastrai-