Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir það „gríðarlega mikil vonbrigði“, að nú skuli komið á daginn að fleiri milljarða vanti enn til þess að ljúka Vaðlaheiðargöngum.
Morgunblaðið ræddi í gær við Bjarna og í frétt blaðsins í dag segir að fjámálaráðherra sé svartsýnn á að félagið geti staðið undir skuldbindingum sínum.
Í fréttinni segir orðrétt:
Nú blasir það við stjórn Vaðlaheiðarganga hf. að meta hvort félagið geti staðið undir skuldbindingum sínum, sem Bjarni óttast að félagið geti ekki.
Mogginn hefur eftir Bjarna: „Á þessu stigi málsins er mikilvægast að stjórn félagsins leggi mat á þær kröfur sem eru komnar fram frá verktakanum og lögmæti þeirra. Þegar það mat hefur verið gert, þarf að meta það hvort félagið getur staðið undir þeim kröfum sem gerðar eru,“ sagði ráðherra spurður hvort hann myndi leggja til að Vaðlaheiðargöng hf. fengju frekari lánafyrirgreiðslu frá ríkinu.