Ekkert liggur fyrir um að sæstrengsverkefni asc muni uppfylla íslenskar kröfur

Morgunblaðið fjallar í dag um skrif sem birst hafa í breska blaðinu Financial News um áform félagsins Atlantic Superconnection (ASC) um að leggja sæstreng á milli Íslands og Bretlands.

 Í endursögn Morgunblaðsins segir orðrétt að áform ASC „hafi þegar uppfyllt kröfur sem gerðar séu í þeim efnum samkvæmt íslenskum lögum“ og að „það sem einkum vanti sé grænt ljós frá breskum stjórnvöldum“.

 Af þessu tilefni vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið taka fram eftirfarandi:

  • Engar forsendur eru til að fullyrða að sæstrengsverkefni ASC muni uppfylla íslenskar kröfur
  • Íslenskt regluverk um sæstrengi er mjög takmarkað. Ljóst er að til þess að af slíku verkefni geti orðið þarf að gera margvíslegar lagabreytingar, til að mynda um skipulagsmál, umhverfislega þætti og fleira. Eðli málsins samkvæmt er útilokað að meta hvort verkefni ASC muni samræmast reglur sem ekki hafa verið settar.
  • Ástæða er til að árétta að þriðji orkupakkinn er því fjarri því að innihalda fullnægjandi regluverk til að sæstrengur geti orðið að veruleika og hann tekur ekki ákvörðunarvald um lagningu nýrra strengja af íslenskum stjórnvöldum.
  • Augljóst er að verkefni ASC hefur ekki heldur hlotið það samþykki Alþingis sem verður skilyrði fyrir lagningu sæstrengs verði lagafrumvarp og þingsályktunartillaga ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þess efnis samþykkt.
  • Fulltrúar ASC hafa á undanförnum árum að eigin frumkvæði kynnt áform sín á nokkrum fundum með ráðuneytinu. Engir fundir hafa verið haldnir að frumkvæði ráðuneytisins, engar formlegar viðræður hafa átt sér stað og ráðuneytið hefur ekki tekið afstöðu til verkefnisins.