Ekkert gefið upp um viðræður indigo og wow air

Hvorki aðilar á vegum Indigo Partners eða WOW air munu tjá sig um þær við­ræður sem eiga sér stað núna á milli félag­anna, umfram það sem þegar hefur komið fram í frétta­til­kynn­ing­um.

Þetta kemur fram í frétt á vefnum Túrist­i.is, en eins og kunn­ugt er þá kom stofn­andi og stærsti eig­andi Indigo Partners, hinn 81 árs gamli Bill Franke, til lands­ins á dög­unum og átti fundi með Skúla Mog­en­sen, for­stjóra og eig­anda WOW air.

Í til­kynn­ingu sem send var út eftir tveggja daga fund­ar­höld, kom fram að góður gangur hefði verið í við­ræð­un­um.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2018-12-08-ekkert-gefid-upp-um-vidraedur-indigo-og-wow-air/