Veitingastaðnum Dill hefur verið lokað og rekstrarfélagið sem rak hann ásamt veitingastaðnum Systur hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. K100 greindi fyrst frá og vísar til óstaðfestra heimilda. Ekki hefur náðst í eigendur staðanna tveggja til staðfestingar.
Árið 2017 varð Dill fyrsti íslenski veitingastaðurinn sem hlotnaðist sá heiður að fá Michelin-stjörnu. Í upphafi þessa árs missti staðurinn stjörnuna.
Í viðtali við Morgunblaðið undir lok apríl var engan bilbug að finna á Gunnari Karli Gíslasyni matreiðslumeistara og eins stofnenda Dill þrátt fyrir að staðurinn hefði misst stjörnuna. Sagði hann þá að missir Michelin-stjörnunnar hafi komið sér á óvart en að áætlað væri að endurheimta hana.
Dill er enn eini íslenski veitingastaðurinn sem hefur hlotið Michelin-stjörnu.