Fram komi í máli Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins á fundi Viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins í morgun að mikill fjöldi mjög efnaðra ferðamanna komi til Íslands og sumir beinlínis í þeim tilgangi að sækja Bláa lónið heim. Alls komu 1,3, milljónir ferðamanna í fyrra í lónið.
Árið 2011 var mikið örlagaár, sagði Grímur en þá setti tímaritið National Geographic Bláa lónið á lista yfir 25 undur veraldar.
Þann 1. apríl síðastliðinn opnaði Bláa lónið nýtt lúxushótel við lónið. Herbergin eru frá 40 til 200 fermetrar að stærð og svítur í boði.
Verðið fer eitthvað eftir því hvenær fólk á leið til landsins en algengt verð fyrir svítu er um 350 til 400 þúsund krónur nóttin. Stóra svítan kostar svo um eina og hálfa milljón sólarhringurinn,“
Viðskiptaklúbbur Morgunblaðsisn og mbl.is stóð fyrir morgunverðarfundi í morgun, fimmtudag þar sem Grímur , forstjóri Bláa lónsins, var sérstakur gestur.