„ég tek við gusum fram eftir kvöldi“

„Uppnefni, eins og popúlistar, öfga-þjóðernishyggjumenn og einangrunarsinnar, gagnvart þeim sem eru á móti eða hafa efasemdir um innleiðingu 3ja orkupakkans, eru afskaplega hvimleið,“ segir Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Facebook. Skiptar skoðanir eru um innleiðingu þriðja orkupakkans og óttast þeir sem eru mótfallnir orkupakkanum að Íslendingar missi yfirráð yfir auðlindum sínum. Brynjar er á öðru máli. Hann kveðst hafa átt samtöl við marga efasemdamenn.

Brynjar segir:

„ ... og verð ekki var við þessi einkenni enda allir þeirra skoðunar að frjáls viðskipti milli þjóða sé mikilvægt hagsmunamál. Forsenda frjálsra viðskipta milli þjóða er sjálfstæði þeirra og fullveldi og það ásamt hæfilegri þjóðernisvitund og samkennd er svo forsenda þess að við getum kallað okkur þjóð.“

„Frá því að þessi 3ji orkupakki leit dagsins ljós lýstu flestir ef ekki allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins því yfir að þeir myndu ekki samþykkja orkupakkann ef í honum fælist yfirráð annarra yfir orkuauðlindum okkar og orkufyrirtækjum eða ákvörðun um lagningu sæstrengs væri í höndum annarra en okkar,“ segir Brynjar og bætir við:

„Hvað þá ef í honum fælist afsal á fullveldi okkar. Með þau skilaboð fóru ráðherrar okkar í mikla vinnu til að tryggja með skýrum hætti að öll yfirráð og ákvarðanir hvað þetta varðar væri í okkar höndum. Hefur sú vinna skilað því að ég er ekki efasemdamaður lengur og mun ekki setja EES samninginn, sem hefur skilað okkur meira en nokkuð annað í seinni tíð, í uppnám með því að hafna 3ja orkupakkanum. Ég er ekki mikið fyrir að keyra út í skurð og vona að ég komist upp úr honum klakklaust, ef ég þarf þess ekki.“

Bætir Brynjar við að þetta sé hann skoðun í hnotskurn. Þá segir hann að lokum:

„Eðlilega fylgja þessu máli miklar tilfinningar og ég tek því við gusum fram eftir kvöldi. Ég vona samt að við getum tekið málefnalega og yfirvegaða umræðu um málið meðan það er til meðferðar hjá þinginu.“