Ástþór Magnússon segist aldrei hætta tilraunum til að verða forseti Íslands. Hann hefur tvívegis áður verið í kjöri til forseta, 1996 þegar hann fékk 2,7 prósent og 2004 þegar hann fékk 1,9 prósent.
Ástþór býr á Bretlandi þar sem hann borgar skatta. Hann á fyrirtæki hér sem borgar skatta á Íslandi, en sjálfur á hann ekki lögheimili hér.
Ástþór segir að verði hann ekki kjörinn forseti muni hann halda áfram og bjóða sig fram á nýjan leik. „Ég mun aldrei hætta.“