Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að launabætur til stofnana næstu þrjú árin verði aðeins 0,5 prósent umfram verðlag og hyggst bregðast við launakostnaði umfram slíka kaupmáttaraukningu með niðurskurði, innheimtu gjalda eða öðrum aðhaldsráðstöfunum.
Þetta kemur fram í greinargerð fjármálaáætlunar. „Gengið verður út frá þeirri stefnumörkun, í fjárlögum áranna 2020-2022, að launabætur til stofnana nemi 0,5% umfram verðlag árin 2020-2022, í stað 1,5%, og að bæturnar verði 1,5% eftir það,“ segir þar. „Verði launaþróun önnur fellur það í hlutverk viðkomandi ráðuneytis að mæta umframkostnaði með ráðstöfunum innan viðeigandi málefnasviðs og málaflokks í fjárlagagerðinni.“
Nánar á
https://stundin.is/grein/8703/