„Mig hefur alltaf dreymt um að komast í viðtal á Útvarpi Sögu. Fá svona drottningarviðtal þar því að mig langar svo að tala við „vonda fólkið.“ Ég setti Arnþrúði [Karlsdóttur] og Pétur[Gunnlaugsson] á boðslista á myndina en náði ekki að hringja í þau. Mig dreymdi um að fá svona „drottningarslott“ þar,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri og leikari í léttum dúr.
Benedikt var viðmælandi Sigmundar Ernis í sjónvarpsþættinum Mannamál síðastliðinn fimmtudag, þar sem hann fór um víðan völl.
Kvikmynd Benedikts, Kona fer í stríð, hefur notið mikillar farsældar og unnið til fjölda verðlauna á erlendri grundu, auk þess að vera framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. Myndin fjallar um náttúrverndarsinna, konu á fimmtugsaldri, sem fer ein síns liðs í stríð gegn áliðnaðinum.
Heimsendir í nánd vegna sóunarkapítalisma
Benedikt segir hugmyndina að myndinni hafa kviknað úr samtímanum og þeirri óhugnanlegu framtíðarsýn sem blasir við okkur; að heimsendir sé í nánd. „ Kapítalisminn sem við lifum við er sóunarkapítalismi. Við þurfum allt í einu að breyta þessari hugmynd og það er upp á líf og dauða. Þannig að hér erum við með heim sem þarf að bjarga. Það er mjög mikið af bíómyndum um þetta, hetja sem þarf að bjarga heiminum. En það eru ekki gerðar margar myndir um hetjuna sem er að bjarga okkur frá loftslagsvánni. Þannig að ég fór að „fantasera“ um þetta“, segir Benedikt.
Vegna efnistaka myndarinnar hefur Benedikt verið sakaður um að hata rafmagn. Hann segist ekki mótfallinn rafmagni, en sé á móti því að sóa rafmagni í að búa til skít sem mengar heiminn. Hann nefnir sem dæmi áliðnaðinn. „Álið er mikilvægur málmur og er partur af lausninni. Hann léttir öll okkar farartæki og er mjög verðmætur. Álið er samt svo umhverfisdýr málmur, það er báxít málmur og það er gífurleg orka sem fer í að framleiða ál. Í rauninni er það glæpsamlegt að framleiða ál úr olíu eða kolum, það ætti að banna það. Álið verður alltaf partur af framtíðinni en álinu er sóað eins og enginn væri morgundagurinn,“ segir Benedikt einnig.
Viðtalið við Benedikt er að finna í heild sinni hér að neðan: