Dr. Haraldur Sigþórsson umferðarverkfræðingur segir áætlanir borgaryfirvalda um fjölgun notenda almenningssamgangna byggjast á óskhyggju og muni kalla á gríðarlega þéttingu byggðar næst stofnbrautum sem eigi eftir að reynast mjög kostnaðarsöm.
Dr. Haraldur er gestur Björns Jóns Bragasonar í fréttaskýringarþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, en hann segir alltof lítið hafa verið um framkvæmdir í umferðinni undanfarin ár og það sé skýringin á þeim miklu töfum sem almenningur glímir nú við.
Ýmsar stórar framkvæmdir hafi verið teknar út af skipulagi, eins og til dæmis mislæg gatnamót á Miklubraut. Dr. Haraldur kom að hönnun þessara umferðarmannvirkja fyrir tuttugu til þrjátíu árum og segir að vel megi dusta rykið af tillögunum, en útlitsteikningar nokkurrra þeirra má sjá hér að neðan.