Umtalaðasti baráttumaður síðustu vikna og mánaða á Íslandi, Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, er gestur Sigmundar Ernis í áhrifaríku viðtali í þættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.
Þar fjallar hann á einlægan og opinskáan hátt um tildrög þess að átakið Höfum hátt hóf göngu sína í kjölfar vitneskjunnar um að ríkisvaldið hefði veitt dæmdum barnaníðingum uppreist æru, þar á meðal Robert Downey, áður Róberti Árna Traustasyni lögmanni sem var dæmdur fyrir barnaníð árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum, en dóttir Bergs Þórs er eitt af fórnarlömbum þess níðings.
Bergur segir málið allt hafa haft gríðarleg áhrif á fjölskylduna og það hafi tekið hana langan tíma að vinna sig út úr því mikla sorgarferli sem hófst eftir að glæpurinn lá fyrir. Mest um vert sé að tala um hlutina, hafa hátt, og láta ekki þögnina næra óttann og skömmina, heldur rísa upp og skila viðbjóðnum og glæpnum til föðurhúsanna, akkúrat þeirra sem telja sig ekki þurfa að iðrast gjörða sinna fyrir svo alvarlega glæp sem barnaníð er og telja sjálfsagt að þeir geti fengið stimpil hins opinbera á endurreista æru.
Það sé hins vegar umhugsunarvert hvað mikið andvaraleysi hafi ríkt í þessum málaflokki um áraraðir, rétt eins og það hafi ekki verið hlustað nægilega á þær konur sem helst hafa opnað á umræðuna í þeim efnum. Sjálfur hafi hann spurt sig hvort ástæðan fyrir andvaraleysinu sé sú að um konur sé hér að ræða.
Hann segir að dóttur sinni líði vel í dag, sjálf hafi hún ekki tekið í mál að þagga það niður þegar það komst aftur í hámæli í sumar - og hann kveðst stoltur af stelpunni sinni sem hafi hvatt fjölskylduna sína til að stíga upp og standa enn sem fyrr saman gegn ofbeldi og níðingsmönnum.
Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.