Líklegt er talið að Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar og fyrrverandi forsetafrú, sé sú „Dorrit“ sem finna má í alræmdri svartri bók Jeffrey Epstein. Epstein framdi á dögunum sjálfsmorð í fangaklefa sínum undir afar grunsamlegum kringumstæðum, en hann átti yfir höfði sér 45 ára fangelsi vegna mansals og barnaníðs.
DV greinir frá og segist Dorrit í svari við fyrirspurn miðilsins um hvort hún kunni að vera í símaskránni alræmdu hafa verið nágranni hans um tíma. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhvern tímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja. Það er möguleiki á því að á einhverjum tímapunkti hafi hann verið með símanúmerið mitt,“ segir Dorrit.
Símaskráin hefur verið birt opinberlega en öll símanúmer hafa þó verið afmáð. Í henni er að finna nöfn heimsþekkts fólks, til dæmis Donald Trump, Bill Clinton og Bill Cosby.