Dorrit Moussaieff nýtir sér samfélagsmiðilinn Instagram þessa dagana til að lýsa í máli og myndum deilum sínum við Loropiana fjölskylduna svonefndu en svo virðist sem vatn leki í miklu magni frá þeim niður í íbúð hennar. Birtir hún meðal annars myndbönd af vatnslekanum, sem er mikill.
Þetta er brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.
Dorrit segir: „Íbúðin fyrir ofan mig olli þessum skemmdum [...]Þrátt fyrir margar beiðnir hafa þau ekki kíkt á skemmdirnar. Of upptekin?“
Þá segir Dorrit að tryggingafyrirtækið hennar sjái sér ekki fært að tryggja íbúð hennar lengur. Einnig birti Dorrit í gærkvöldi fjölda myndbanda af vatnsskemmdunum þar sem má sjá vatn leka niður af hæðinni fyrir ofan inn í hennar íbúð.
Þetta er brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.