Dóra björt: „sýnir að eyþór hefur í raun sagt ósatt“

„Það sýnir sig að Eyþór hefur í raun sagt ósatt um þetta lán. Hann hefur beinlínis haldið því fram að hann sé með engu skuldbundinn útgerðinni en það er ekki satt. Svo kallar hann þetta alvöru viðskipti en þetta virðast hafa verið sýndarviðskipti.“

Þetta sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þar sakaði hún Eyþór Arnalds um að segja ósatt um álveitingu Samherja vegna kaupa hans í Morgunblaðinu.

Hringbraut greindi frá því nýverið að Útgerðarfélagið Samherji hafi afskrifað meira en helming af kröfum sínum á hendur eignarhaldsfélagi Eyþórs. Stundin vitnar í ársreikninga félaga í eigu Samherja sem og í félag Eyþórs, Ramses II ehf.

Í Stundinni segir að viðskiptin líti út fyrir að vera sýndarviðskipti þar sem Samherji hafi viljað losna við hlutabréf í Morgunblaðinu og eignarhaldsfélag Eyþórs tók við hlutabréfunum án þess að hafa greitt fyrir þau eða þurfi þess í nánustu framtíð. Ingi Freyr Vilhjálmsson sem fjallar ítarlega um viðskiptin í Stundinni skrifar að gjörningurinn virki glórulítill út frá viðskiptalegu sjónarmiði, og þá sérstaklega í ljósi þess að uppsafnað tap Morgunblaðsins síðastliðinn áratug, frá uppkaupum nokkurra stærstu útgerðarfélaga landsins á því, nemur um 2 milljörðum króna. Eyþór fékk lán fyrir þessum hlutabréfum frá félögum í eigu Samherja. Þá segir í Stundinni:

„Flest bendir hins vegar til þess að þessi viðskipti Eyþórs hafi heldur ekki falið í sér mikla áhættu fyrir hann þar sem hann greiddi líkast til ekkert fyrir hlutabréfin úr eigin vasa.“

Eyþór vildi ekki svara hvað hann hefði sjálfur greitt fyrir bréfin. Sagði hann að hans fjárfesting hefði tapast. Þá sagði Dóra Björt að útgerðin væri í raun að gefa Eyþóri mörg hundruð milljónir með þessari niðurfellingu, en þetta sagði Dóra Björn þegar hún var spurð hvort Samherji væri í raun með Eyþór í vasanum.

Aðspurð hvort hún teldi að Samherji væri á einhvern hátt með „Eyþór í vasanum“ svaraði hún því til að það væri þannig að útgerðin væri í raun að gefa Eyþóri mörg hundruð milljónir með niðurfellingu sinni. Þá sagði Dóra Björt einnig:

„Þú hefur sagt að þetta séu alvöru viðskipti en nú hefur það sýnt sig að þetta séu mögulega bara sýndarviðskipti. Þú hefur sagt að þú sért ekki skuldbundinn þessu fólki, útgerðarhagsmunum á neinn hátt, það er bara ekki rétt. Þetta snýst um heiðarleika og mér finnst þú bara ekki vera að koma heiðarlega fram í þessu máli því þú segir ekki rétt frá.“