Skörp orðaskil komu upp á milli borgarfulltrúanna Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, forseta borgarstjórnar og Eyþórs Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins, vegna breytinga á hagsmunaskráningu borgarfulltrúa og siðareglum á borgarstjórnarfundi í gær. Á borgarstjórnarfundinum beindi Dóra þeirri spurningu til Eyþórs hvort hann væri tengdur Strokki Energy ehf, þar sem hann væri skráður tengiliður á vefsíðu félagsins og notaði netfang Strokks sem ræðismaður Botsvana. Einnig spurði hún Eyþór um tengsl sín við fyrirtækið Íslensk vatnsorka ehf.
Eyþór sagði spurningar Dóru vera til skammar. Neitaði Eyþór því að hann ætti hlut í Strokki Energy ehf og sagðist ekki tengjast orkufyrirtækjum á neinn hátt.
„Hef ég gert það? Já. Geri ég það núna? Nei,“ sagði Eyþór.
Kliður myndaðist í borgarstjórnarsalnum þegar málið var rætt og mátti heyra framíköll frá borgarfulltrúum minnihlutans.
„Þetta er á andskoti lágu plani,“ sagði Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. „Borgarstjóri er að skipuleggja Óðinstorg, dýrasta torg Reykjavíkursögunnar fyrir utan heimili sitt, síðan kemur Píratinn hérna upp með álpappírshattinn á hausnum? Þetta er komið út í rugl.“
Vigdís Hauksdóttir sagði að Dóra væri að efna til pólitískra réttarhalda. Vigdís sagði: „Þetta er til ævarandi skammar.“ Síðan bætti hún við:
„Að efna til pólitískra réttarhalda yfir einum borgarfulltrúa er fordæmalaust. Ekki nóg með að hún sé forseti borgarstjórnar, þá stýrði hún líka vinnu við endurskoðun nýrra siðareglna, sem hún sjálf þverbraut í umræðunni. Sami borgarfulltrúi stýrði líka vinnu við að endurskoða reglur um skráningu fjárhagslegra hagsmuna borgarfulltrúa og trúnaðarstörf utan borgarstjórnar. Hún er auk þess formaður mannréttindaráðs.“
Dóra Björt sagði svo á Facebook-síðu sinni:
„Ég sakaði Eyþór ekki um eitt né neitt. Það getur vel verið að um gamlar upplýsingar hafi verið að ræða en í ljósi þess að ekki var hægt að sannreyna málið með því að fletta upp í hagsmunaskráningu Eyþórs þá ákvað ég að spyrja hann um þetta til að komast að hinu sanna í málinu. Þessu myndi ég þó ekki þurfa að standa í með breyttum reglum um hagsmunaskráningu.“