Sigurjón Bragi Geirsson, matreiðslumaður hjá Garra heildverslun og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, var valinn Kokkur ársins 2019 í Hörpunni á laugardaginn. Í þriðja sæti var Iðunn Sigurðardóttir, matreiðslumeistari hjá Matarkjallaranum, sem varð þar með fyrst kvenna til að komast á verðlaunapall í keppninni.
Sigurjón Bragi og Iðunn eru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem þau ræða keppnina.
Klúbbur matreiðslumeistara hélt eins og fyrri ár keppnina Kokkur ársins 2019. Í keppninni er eins og nafnið gefur til kynna besti kokkur landsins valinn og hlýtur hann þátttökurétt fyrir Íslands hönd í keppninni um Matreiðslumann Norðurlanda.
„Fyrir keppni er maður mest stressaður en svo þegar maður er byrjaður er maður bara með ákveðna áætlun, sem maður fylgir, og þá eiginlega hverfur stressið og maður er bara að vinna,“ segir Sigurjón Bragi.
Aðspurður um hvernig maður keppir í matreiðslu segir Sigurjón Bragi: „Það er svo mikið sem spilar inn í. Útlit, hreinlæti, vinnubrögð.“
Iðunn bætir við að nánast sé fylgst með hverri einustu hreyfingu þegar keppt er í matreiðslu. „Það eru eldhúsdómarar sem fylgjast með öllu sem gerist inni í eldhúsunum og svo eru aðrir smakkdómarar sem meta matinn þegar hann er tilbúinn.“
„Dómararnir eru að leita að mínusum. Þeir eru ekki að segja hvað þú ert frábær. Þeir eru bara að leita að því hvað þú áttir að gera betur. Um það snýst keppnin,“ segir Sigurjón Bragi.
Frú Eliza Reid forsetafrú og Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra afhentu sigurvegurum kvöldsins verðlaunin að viðstöddum rúmlega 200 manns.
Nánar er rætt við Sigurjón Braga og Iðunni í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.