Sænski plötusnúðurinn DJ Avicii fannst látinn í Óman í dag. Avicii, sem hét réttu nafni Tim Bergling var 28 ára gamall og ein skærasta stjarna danstónlistar í heiminum í dag.
Í tilkynningu frá umboðsmanni hans er lýst djúpri sorg yfir skyndilegu fráfalli hans og fólk beðið um að sýna fjölskyldu hans tillitsemi á þessum erfiða tíma og hún sé í áfalli.
Ekki var greint frá dánarorsök og sagt að ekki væri að vænta frekari tilkynnninga.
Meðal smella Aviciis mætti nefna Wake Me Up, Levels, og Lonely Together með Ritu Ora.