„Í vikunni tók við nýr Seðlabankastjóri, Ásgeir Jónsson. Þetta er mikilvægt embætti og eðlilegt að ræða kost og löst á viðkomandi. Ég get þó ekki orða bundist yfir því hvað margir leggja lykkju á leið sína til að gera lítið úr Ásgeiri vegna þess að hann stamar.“
Á þessum orðum hefst færsla Dags B. Eggertssonar borgarstjóra, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag. Sitt sýnist hverjum um ráðninguna eins og gengur og gerist þegar um svo ábyrgðarmikið embætti er að ræða en Dagur segir að gagnrýni af þessu tagi sé á afar lágu plani.
Hann lýsir því hvernig bróðir hans, Gauti, hafi stamað mjög illa þegar þeir voru að vaxa úr grasi. „Frá frumbernsku man ég eftir kvíðanum og angistinni sem fylgdi þessu og ég man eftir umræðum við foreldra okkar um mikilvægi þolinmæði, bíða, ekki grípa frammí og ekki gera óþarfa mál úr þessu. Það þurfti varla að hafa orð á því að stíðni eða háð væri útilokað. Ég gat hins vegar orðið mjög reiður ef ég fann fyrir háði eða stríðni í garð bróður míns út af þessu.“
„Stamið eltist af honum og ég veit fyrir víst að Ásgeir hefur með mikilli vinnu unnið mjög úr sínu málhelti. Síðar á ævinni hef ég kynnst því að margt kjarkmesta fólk sem ég hef kynnst hefur þá reynslu að hafa þurfti að glíma við stam. Ég vona að Heiðar Helguson knattspyrnumaður fyrirgefi mér að ég nefni hann sem sérstaka fyrirmynd í þessu efni,“ bætir Dagur við.
Hann biður alla um að hugleiða það að ávallt skuli sýna aðgát í nærveru sálar. „Við þurfum greinilega að ræða stam og málhelti meira sem samfélag og bið ég allt fullorðið fólk að hugleiða þessi orð. Ef við krakkarnir gátum tekið tillit og sýnt stuðning fjögurra, fimm ára gömul, hljótum við öll að geta gert það. Ásgeiri óska ég til hamingju með mikilvægt og vandasamt starf og lýsi þeirri von að hann verði farsæll seðlabankastjóri,“ segir Dagur að lokum.