Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins, segir svigrúm til áframhaldandi aukningar ríkisútgjalda vera takmarkað. Ísland muni því ekki geta haldið áfram úti öflugu velferðar- og menntakerfi án þess að forgangsraða og draga úr útgjöldum til málaflokka sem eru utan grunnhlutverks ríkisins.
Í bakþönkum í Fréttablaðinu í dag bendir hann á að búist sé við 14 prósent samdrætti í ferðaþjónustu á þessu ári. „Greinin er orðin svo mikilvæg efnahagslífinu að það kallar á endurskoðun á forsendum ríkisfjármála. Forsendur sem var reyndar búið að benda á að voru of bjartsýnar. Og hver eru viðbrögðin við breyttum forsendum? Jú, meðal annars að hætta við lækkun bankaskatts. Lækkun bankaskatts myndi skila sér beint í lægri vöxtum á lánum til heimila og fyrirtækja. Hún myndi spila vel með markmiðum stjórnvalda í húsnæðismálum, myndi styðja við markmið lífskjarasamningsins um lækkun vaxta og bæta kjör allra.“
„Það er með ólíkindum hvað það virðist þurfa mikið að ganga á til að stjórnmálamenn hugleiði að draga úr ríkisútgjöldum,“ heldur Davíð áfram. „Opinber útgjöld á Íslandi eru þau þriðju hæstu meðal þróaðra ríkja, eða 41% af landsframleiðslu. Það þarf miklar skatttekjur til að standa undir öllum þessum útgjöldum. Skattheimta á Íslandi er enda sú þriðja hæsta meðal þróaðra ríkja, eða 33% af landsframleiðslu.“
Hann segir von á því að útgjöld muni hækka enn meira. „Þjóðin er að eldast og verið er að þróa betri lyf og tækni í heilbrigðisgeiranum sem mun kalla á enn meiri þrýsting á hærri útgjöld. Tæknibreytingar gera það að verkum að störf hverfa og ný skapast sem mun leiða til aukins álags á menntakerfið.“
Að lokum segir Davíð að svigrúm til áframhaldandi aukningar ríkisútgjalda sé takmarkað. „Við munum því ekki geta haldið áfram úti öflugu velferðar- og menntakerfi án þess að forgangsraða og draga úr útgjöldum til málaflokka sem eru utan grunnhlutverks ríkisins. Til þess að það geti gerst verður að afsanna það tregðulögmál sem virðist vera í gildi þegar ríkisútgjöld eru annars vegar.“