Ríkisútvarpið er sérkennileg stofnun, sem auglýsir oft á viku sjálfa sig með því að segja að þetta „sé stofnun okkar.“ Það þarf ekki að auglýsa. Stofnunina og svokölluð fréttastofa hennar sérstaklega hefur lengi umgengist þessa opinberu stofnun sem „stofn-unina sína“ og þverbrotið daglega þær reglur sem um hana gilda. Sífellt fleiri þeirra sem til almennings teljast og eru neyddir með atbeina skattstjórans til að halda þessari stofnun uppi gegn vilja sínum og með vaxandi ógleði átta sig á því hvað hin misnotaða aug-lýsing „stofnunin okkar“ þýðir. „RÚV“ dregur á hverjum degi taum vinstri flokk-anna, Samfylkingar og VG, og tekur aðra smáflokka á vinstri kantinum með þegar það hentar þessum tveimur.”
Þetta skrifar Davíð Oddsson í Reykjavíkurbréf sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Þar sakar hann RÚV um að styðja vinstri flokkana. Sakar hann fréttastofu RÚV um að nálgast aldrei umfjöllun um vinstri flokkana með gagnrýnum hætti. Davíð segir:
„Og svo á stofnunin sína óvini. Bréfritari er stoltur af því að teljast til þeirra, þótt stofnunin hafi engar lagaheimildir til að leggja stjórnmálalega andstæðinga sína í einelti. Þegar bréfritari hélt á sínum tíma ræðu á landsfundi, frjáls úr hlutleysiskröfu bankastjóra, þar sem margt fréttnæmt var sagt, hljóp fréttamaður RÚV á það að bréfritari hefði líkt sjálfum sér við Jesú Krist.
Að svo miklu leyti sem bréfritari líkti sér við einhvern eða einhverja í þeirri ræðu þá hefðu menn í erindagjörðum, eins og RÚV gjarnan er, getað sloppið með að segja að Davíð Oddsson hefði líkt sjálfum sér viðræningjana sem hengdir voru Kristi til samlætis. En sú frétt hefði ekki bent til að maðurinn væri orðinn galinn.
Sjálfsagt gat þessi undarlega „frétt“ skrifast á heimsku þess tiltekna fréttamanns sem í hlut átti. En þegar ekkert var leiðrétt né sjálfsögð afsökun enda sást hvað hékk á spýtunni.“
Þá rifjar Davíð upp þegar hann var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins og sakar RÚV um að hafa fjallað með ósanngjörnum hætti um þá ráðningu.
„Þegar tveir ritstjórar voru ráðnir að einkafyrirtækinu Morgunblaðinu fyrir tæpum 10 árum var RÚV með mikinn æsing í kvöldfréttatímum sínum um þetta einkafyrirtæki og samkeppnisaðila gegn 7 milljarða forskoti þess. Hringt var „live“ inn í fréttatímann og sá kynntur sem starfsmaður og sagði hannað „fólk gengi grátandi um ganga Morgunblaðsins.“ Á daginn kom að heimildin hafði ekki verið á staðnum vikum saman. Sagt var frá miklu uppsögnum ááskriftum og „RÚV“ gaf upp símanúmer sem áskrifendur gætu hringt í til að segja upp áskrift að blaðinu!!! Næstu tvo daga birti textavarp Ríkisútvarpsins símanúmerið sem ætti að hringja í til að segja upp Morgunblaðinu! Ríkisútvarpið (það er klíkan sem þykist eiga það og auglýsir þá eign), hefur aldrei beðið afsökunar á þessari einstöku framkomu.