Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ekki búast við að fá tilboð frá Samtökum atvinnulífsins á fundi deiluaðila í dag sem sé þess eðlis að ekki komi til viðræðuslita. Sólveig Anna fékk í gær umboð frá samninganefnd Eflingar til að slíta viðræðum við SA gerist þess þörf og segist hún ekki óttast það að fara í verkfall. Fréttablaðið greinir frá.
„Fólk er tilbúið að gera það sem það telur þurfa og undirbúningsvinna okkar er langt á veg komin. Samkvæmt könnun eru 80 prósent félagsmanna tilbúin til þess. Fólk skilur hvað í þessu felst, skilur mikilvægi þessa verkfallsvopns. Það er ein af stærstu mýtum íslensks samfélags að fólk vilji ekki fara í verkföll. Það er ekki mín reynsla og það hefur aldrei verið mín persónulega afstaða,“ segir Sólveig Anna í samtali við Fréttablaðið.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur sömuleiðis fengið umboð frá samninganefnd félagsins til þess að slíta viðræðum við SA. Í samtali við Fréttablaðið segir Ragnar Þór að hann muni ekki tjá sig um hvort hann muni nýta sína heimild fyrr en að loknum fundinum, en segir þó að ekki sé hægt að fara í grafgötur með að staðan sem upp er komin sé grafalvarleg.
Kjarninn greinir auk þess frá því að Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, hafi einnig fengið umboð frá samninganefndum sinna félaga til þess að slíta viðræðum.