Marinó G. Njálsson skrifar: Enn tekst Alþingi að misbjóða siðferðisvitund þjóðarinnar. Enn sannar Alþingi að völd spilla.
Ég var í gærkvöldi að velta fyrir mér spillingarsamþykkinu sem Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sendi frá sér um aksturskostnað þingmanna. Ég var svo ótrúlega hissa á niðurstöðu „forsætisnefndar“, að mín litla trú sem þó lifði á siðgæðisgildum meirihluta Alþingis, hún dó við að lesa niðurstöðuna.
Þórður Snær Júlíusson hefur hins vegar sparað mér tíma við að koma hugsunum mínum á blað, því greinin hans á Kjarnanum hefði allt eins getað verið skrifuð af mér og líklegast fjölda annarra sem misbauð gjörsamlega sú meðvirkni og spillingarhugsun sem kemur fram í niðurstöðu forseta Alþingis.
Nánar á