Bubbi lagður inn á spítala

Garð­partý Bylgjunnar fer fram í Hljóm­skála­garðinum í kvöld. Fjöl­margir lista­menn stíga á stokk, þar á meðal hljóm­sveitin Dimma. Bubbi Mot­hens var bókaður með hljómsveitinni en mætir ekki þar sem hann hefur verið lagður inn á spítala.

Fréttablaðið greinir frá þessu.

Bubbi skrifar þessi skilaboð:

„Því miður verð ég ekki með Dimmu í Hljómskálagarðinum í kvöld á Menningarnótt eins og til stóð og ég hafði hlakkað svo til að njóta með ykkur. Ástæðan er sú að ég hef verið að glíma kvilla í nefi undanfarið sem ekki næst að koma í lag fyrir kvöldið - því miður. Ég hef verið lagður inn á Landspítalann til meðhöndlunar,“ segir í fb status.