„Líklega er búvörusamningurinn lélegasti samningur sem um getur. Nærri lætur að hann megi kenna við hamfarir af mannavöldum. Fyrsta gildisárið var ekki liðið þegar sauðfjárbændur þurftu að taka á sig rúmlega þriðjungs verðlækkun, vegna þess að samningarnir hvöttu til offramleiðslu.
Ekki er hægt að hugsa sér verri samninga en þá sem draga úr vöruúrvali, hækka verð til neytenda, auka ríkisútgjöld og leiða til verri afkomu fyrir bændur, sem eru ekki öfundsverðir af sínum launum, sem eru lægri en hjá flestum, ef ekki öllum, öðrum stéttum,“ þetta má meðal annars les í grein Benedikt Jóhannessonar, stofanda Viðreisnar, sem birtist í Mogga dagsins.
Nánar á