Brotist inn til hjóna þegar þau voru heima - „maður heldur að maður sé óhultur heima hjá sér“

Ónefnd kona sem býr í póstnúmeri 104 hvetur fólk til að læsa ávallt útidyrahurðinni heima hjá sér, líka þegar það er heima við. Í gærmorgun lenti hún og eiginmaður hennar í óhugnanlegu atviki í morgun, þegar kvenkyns þjófur gerði sér lítið fyrir með því að ganga inn í íbúð þeirra og stela greiðslukorti.

„Maður heldur að maður sé óhultur heima hjá sér með hurðina ólæsta, en er það greinilega ekki. Þetta gerðist í morgun. Ég og maðurinn minn sitjum í sófanum, nánast á móti útidyrahurðinni. Hurðin er ólæst eins og oft áður, þannig hefur það oft verið þegar við erum heima,“ segir ónefnda konan í samtali við Mannlíf.

Innbrotsþjófurinn hafði labbað inn á heimili þeirra og stolið greiðslukorti. „Allt í einu verður maðurinn minn var við að það er einhver kominn inn í forstofuna og hann rýkur upp. Þá sér hann þessa ungu konu sem hleypur í burtu. Við hlaupum á eftir henni og náum henni,“ heldur hún áfram.

Konan segir innbrotsþjófurinn hafi í fyrst ekki viðurkennt að hafa tekið greiðslukortið, sem lá á borði í grennd við útidyrahurðina. Hjónin slepptu henni og hringdu strax í lögregluna. „Við vissum alveg að hún hefði tekið kortið en okkur fannst skynsamlegra að láta hana bara fara og loka svo kortinu,“ segir hún.

Þegar þau tilkynntu þjófnaðinn fengu hjónin þær upplýsingar frá lögreglu að sama kona hefði farið inn í fleiri hús og íbúðir í 104 hverfinu í gærmorgun.

„Svona er þetta bara orðið. Þetta er að verða verra og verra og maður þarf greinilega að vera á varðbergi. Maður heldur að maður sé óhultur heima hjá sér en svo er ekki. Framvegis verðum við alltaf með hurðina læsta,“ segir konan að lokum.