Brotist inn í gagnaver advania

Innbrot var framið í nýbyggingu á framkvæmdasvæði við gagnaver Advania á Fitjum í Reykjanesbæ um miðjan janúar. Nokkrir menn brutust inn í álmu í gagnaverinu sem ekki var tilbúin að fullu, og höfðu á brott verðmætan tækjabúnað.

Ekki var um að ræða búnað sem geymir gögn og því var aðeins um fjárhagslegt tjón að ræða, að því er fram kemur í tilkynningiu frá félaginu.

Atvikið náðist á öryggismyndavélar og er ljóst að um þaulskipulagðan verknað er að ræða.

 

Fjölmennt lið lögreglunnar á Suðurnesjum hefur farið með rannsókn málsins. Telur hún málið tengjast tveimur öðrum innbrotum sem framin voru skömmu áður, þar sem samskonar tækjabúnaði var stolið. Nokkrir menn hafa verið handteknir grunaðir um aðild að málinu og hafa fjórir setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Er málið rannsakað sem skipulögð glæpastarfsemi

 

Að ósk lögreglu var ekki unnt að upplýsa um innbrotið fyrr en nú.