Blómsveigur verður lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallakirkjugarði á kvenréttindadegi íslenskra kvenna á morgun klukkan 11:00. Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkurborgar, mun leggja blómsveig að leiðinu og flytja stutt ávarp. Salóme Katrín Magnúsdóttir mun svo syngja nokkur lög.
Bríet Bjarnhéðinsdóttur átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands og var fyrsti formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn. Konur í Reykjavík buðu fram Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið 1908 og var það fyrsta sér framboð kvenna á Íslandi.
Þann 19. júní árið 1915 fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi í Reykjavík og Hafnarfirði og öðluðust þar með sjálfstæði frá eiginmönnum sínum til pólitískrar þátttöku, en ekkjur og ógiftar konur höfðu þá haft kosningarétt í um aldarfjórðung. Tveimur árum síðar fengu konur í öðrum sveitarfélögum sömu réttindi. Bríet lést í Reykjavík árið 1940. Öllum er velkomið að koma og eiga hátíðlega stund í minningu Bríetar og réttindabaráttu kvenna.