Breytingar á skrifstofu ráðherra

Jón Pétur Zimsen mun láta af störfum sem aðstoðarmaður ráðherra 15. ágúst nk. Jón hefur starfað sem tímabundinn aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra og sinnt verkefnum á menntaskrifstofu ráðuneytisins.

Hann kom meðal annars að vinnu við undirbúning löggjafar um eitt leyfisbréf fyrir kennara sem taka mun gildi í ársbyrjun 2020, aðgerðum er miðað að fjölgun kennara, undirbúningi menntastefnu til ársins 2030 og endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla og mati á innleiðingu hennar.

Jón Pétur Zimsen mun hefja aftur störf í Réttarholtsskóla í Reykjavík en sinnir áfram verkefnum sem tengjast endurskoðun aðalnámskrár og eflingu starfsumhverfis kennara.