Flugvélaframleiðandinn Airbus tilkynnti í gærkvöldi að fyrirtækið gæti þurft að flytja starfsemi sína úr Bretlandi mistakist stjórnvöldum að semja um aðkomu að mörkuðum Evrópusambandsins. Um 14 þúsund starfsmenn eru á launaskrá Airbus í Bretlandi.
Í samantekt fréttavefjarins ruv.is um málið og vitnar þar til BBC segir að fyrirtækið taki sétrstaklega fram að hér sé ekki um hræðsluáróður að ræða, heldur sá raunveruleiki sem mörg fyrirtæki eiga eftir að takast á við. Fráfarandi formaður bresku viðskiptastofnunarinnar, CBI, greindi frá því í síðustu viku að breskur iðnaður gæti heyrt sögunni til takist Bretlandi ekki að halda sér inni í tollabandalagi ESB. Þar eiga öll 28 aðildarríki ESB tollfrjáls samskipti, og innheimta þau sameiginlega innflutningstolla af vörum innfluttum frá ríkjum utan sambandsins. Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt það útilokað að Bretar verði aðilar að tollabandalaginu. Því gæti breski markaðurinn breyst mikið þegar ríkið fer úr Evrópusambandinu, 29. mars á næsta ári.
Airbus segir í áhættugreiningu sem gefin var út í gær að ef Bretar yfirgefi ESB án þess að gera einhvers konar samninga um aðild að Evrópumarkaði eða tollabandalaginu geti það skaðað breska framleiðslu. Þær kringumstæður myndu neyða Airbus til að endurskoða fjárfestingu sína í Bretlandi og stefnu sína til frambúðar í landinu.
Paul Drechsler, fyrrverandi forseti CBI, segir stjórnendur bílaframleiðenda hafa komið að máli við sig og greint frá áhyggjum af greininni ef Bretland fer úr ESB án samninga við sambandið um áframhaldandi viðskipti við aðildarríki. Þá segir hann engar vísbendingar um að viðskiptasamningar við ríki utan ESB leiði til einhvers efnahagsbata fyrir Breta.