Almenningur á meginlandi Evrópu skilur ekki alveg hvað Bretum gengur til í útgönguferlinu, því það er alveg augljóst mál að þeir vilja sleppa burt en halda samt öllu þegar kemur að kostum aðildar.
Þetta segir Árni Snævarr, margreyndur fréttamaður af Íslandi sem búið hefur í Brussel síðustu þrettán ár, en hann er gestur Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í kvöld ásamt Þóri Guðmundssyni, fréttastjóra Stöðvar 2 sem er ekki síður hokinn af því að fjalla um erlend málefni, sigldur vel um heimsins höf - og nýtir meðal annars reynslu sína af því að búa í Ungverjalandi til að greina aukinn óróa í Evrópu allri vegna innflytjendamála og uppgangi þjóðernispopúlista á síðustu árum, sem stafar kannski af því að hvíti miðaldra maðurinn er barasta orðinn hræddur.
Annars er Brexit í forgrunni í þættinum þar sem teiknaðar eru upp sviðsmyndir næstu ára og rætt hvort Bretar geti hætt við að hætta, sem Þórir telur raunar gæfulegustu sviðsmyndina fyrir þegna hennar hátignar, sem stýrir vel að merkja ekki lengur nokkru heimsveldi, þótt heimamenn vilji halda í annað, en þar er ef til vill hluti vandans í útgönguferlinu kominn, að mati Árna, sem horft hefur á breska ljónið haga sér eins og stunginn grís að undanförnu, hvar hann starfar hinum megin Ermarsundsins og horfir á atburðarásina í hæfilegri nálægð.
Ritstjórarnir byrja klukkan 21, eftir inngang þeirra Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis í samnefndum fréttaþætti.