Samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins geta aðildarríki hætt við ákvörðun sína um að yfirgefa Evrópusambandið án samþykkis annarra aðildarríkja. Það þýðir að breska þingið getur ákveðið að hætta við Brexit.
Bretar geta hætt við að yfirgefa Evrópusambandið án þess að fá samþykki annarra aðildarríkja Evrópusambandsins samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins sem birtur var í morgun. Frá þessu er greint á vef Guardian.
Í úrskurðinum kemur fram að hvert aðildarríki getur afturkallað 50. grein Lissabonsáttmálans án samþykkis frá öðrum aðildarríkjum. Dómstólinn hafnaði þeim rökum, sem sett höfðu verið fram af bresku ríkisstjórninni og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að til þess að afturkalla útgöngu þá þyrftu öll aðildarríkin að samþykkja það fyrst. Í sáttmálanum snýr 50. greinin að því tveggja ára ferli sem hefst þegar aðildarríkin ákveða að yfirgefa sambandið.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-12-10-bretar-geta-einhlida-akvedid-ad-haetta-vid-brexit/