Börkur leikstýrir fyrir bbc

Börkur Sigþórsson hefur verið ráðinn leikstjóri í þremur fyrstu þáttunum af sex í nýrri spennuþáttaröð fyrir BBC sem nefnist Baptiste. Þættirnir eru afleggjari frá spennuþáttunum The Missing, Ólafur Darri Ólafsson lék í.

Þetta kemur fram í Menningunni á RÚV.

Börkur frumsýnir sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd í næstu viku, spennumyndina Varg, og er að ljúka tökum í annarri þáttaröð af Ófærð, sem verður sýnd í haust. Í beinu framhaldi fer hann til Bretlands að hefja undirbúning á tökum á Baptiste.

Börkur segir að það hafi meðal annars verið fyrir tilstilli Ólafs Darra sem hann leikstýrði í Ófærð að hann hreppti hnossið.

„Framleiðendurnir hringdu í hann til að spyrja hvort mér væri treystandi í þetta verkefni,“ segir hann í viðtali við RÚV. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Börkur leikstýrir breskum sjónvarpsþætti. Fyrir tveimur árum leikstýrði hann þætti í þáttaröð um rannsóknarlögreglumanninn Morse.