Borgin fjárfestir 530 milljónum í hjólreiðastíga

Reykjavíkurborg ætlar að bæta við 2,4 kílómetrum við sérstakt hjólastígakerfi borgarinnar í ár. Hluti stíganna er samstarfsverkefni með Vegagerðinni sem greiðir hluta kostnaðar. Borgarráð hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði að ljúka hönnun og bjóða út framkvæmdir vegna verkefna hjólreiðaáætlunar 2019. Kostnaður við verkefnin er áætlaður 530 milljónir króna en Vegagerðin greiðir hluta þeirra. Hlutur Reykjavíkur er 450 milljónir króna.

Áformað er að gera 2,4 kílómetra af nýjum hjólastígum í sumar en þeir eru aðgreindir frá umferð gangandi og akandi þar sem því verður við komið. Rannsóknir sýna að fólk hjólar meira eftir því sem stígakerfi fyrir hjólreiðar batnar. Þannig hefur umferð hjólandi farið stigvaxandi í Reykjavík eftir því sem aðstaða fyrir hjólreiðafólk batnar. Mikil aukning hefur verið í notkun á rafmagnshjólum og sýna sölutölur að sala á rafmagnshjólum hefur verið fjórum sinnum meiri á þessu ári miðað við árið í fyrra.

Talningar á samgönguhjólreiðum fólks við Nauthólsvík sýna að um 1.800 hjól hafa farið þar um á hverjum degi síðustu daga. Yfir 36.000 ferðir voru taldar þar í maí sem er mesta umferð hjóla í einn mánuð sem mælst hefur í Reykjavík. Mesta umferð sem áður hefur verið talin þar var 30 þúsund ferðir í ágúst 2018. Með samgönguhjólreiðum er helgarumferð ekki talin með en hún gæti flokkast undir frístundahjólreiðar.