Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, segir borgarstjórnarkosningarnar á laugardaginn meðal annars snúast um borgarlínu, segir í frétt Morgunblaðsins en Dagur og Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins rökræddu málefni borgarinnar í blaðinu í dag.
Borgarlínan hefur verið kynnt á þann veg að borgin sjái ekki ein um fjármögnun heldur ríkissjóður líka og svo eru önnur sveitarfélög líka hluti af verkefninu, þau sem það vilja. Á vef Samfylkingarinnar segir að fara eigi þó í framkvæmdir við borgarlínu strax á næsta ári. Fjármögnun er þó enn óljós og fjármálaráðherra hefur ekki talað fyrir verkefninu.
Eyþór segist telja hugmynd um borgarlínu fyrir 70 til 100 milljarða varasama Miklubraut í stokk fyrir 20-30 milljarða séu „varasamar” á þann hátt að „ef menn eru að bíða eftir stóra verkefninu þá klára þeir ekki málin á skynsamlegan hátt á meðan”, segir hann í viðtalinu.
Dagur segir afturámóti: Ég held að hún sé ekki mjög umdeild. Ég held að hún sé eitthvað umdeild í pólitíkinni en ég held að þessi umræða hafi skilað því að það er mjög breið samstaða meðal fólks, alveg þvert á flokka um allt höfuðborgarsvæðið, um að þetta sé framtíðin.“