Skattahækkanir vekja enga athygli

\"Blessaður karlinn hann Sigurður Ingi. Í dag gerði hann sig sýnilega með því að boða miklar skattahækkanir. Svo aum er staða Sigurðar Inga að til undantekninga heyrir hafi  hann vakið hina minnstu athygli með framferði sínu\", skrifar Sigurjón M. Egilsson í stuttum pistli á vef sinn miðjan.is

\"Bjarni Ben, yfirmaður dýralæknisins í ríkisstjórninni, boðaði sömu hækkun fyrir fáum dögum. Viðbrögðin voru önnur en nú. Segjast verður sem er að staða Sigurðar Inga er einmitt svona. Hann er viðhengi sem nánast engu skiptir.

Eitt sinn, ekki lengi samt, var hann forsætisráðherra og þótti um tíma frambærilegur í pólitík. Undir hans forystu klofnaði Framsóknarflokkurinn sem kannski var svo ekki til skiptanna þegar til kom. Já, aumt er það og aumt verður það\", skrifa Sigurjón.  Pistilinn má sjá hér á vef Miðjunnar.