Umræðan um þriðja orkupakkann er orðin sú lengsta í sögu Alþingis. Hófust umræður að nýju í dag eftir að ljóst var að ekki tækist að semja við Miðflokkinn um þriðja orkupakkann. Umræða um þjóðarsjóð og sameiningu Seðlabankans og FME verða því teknar fyrir síðar á Alþingi. Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins telur framgöngu þingmanna Miðflokksins vera sjónarspil. Þeim sé í raun sama um orkupakkann. Þá heldur Björn því fram að einstakir þingmenn Miðflokksins hafi einnig fengið sig fullsadda af Sigmundi Davíð sem formanni sem og málþófinu sjálfu.
Björn vildi ekki tjá sig um þessar ásakanir þegar eftir því var leitað. Björn hefur bæði tjáð sig á heimasíðu sinni og á Facebook um framgöngu Miðflokksins. Björn segir á bjorn.is:
„Í umræðum um orkupakkamálið á Facebook hefur athygli mín verið vakin á því að Sigmundi Davíð og félögum hans í þingflokknum sé í raun sama um orkupakkann. Fyrir þeim vaki að nota málið til að tala sig frá atvikinu á Klausturbar 20. nóvember 2018. Þeir vilji trompa það atvik sem nýju málþófsmeti á þingi.“
Þá tjáði Björn sig einnig á Facebook-síðu sinni. Þar segir Björn að nú hafi sannast að Sigmundur Davíð sé ekki fær um að leysa mál í sátt og samlyndi. Björn segir:
„Þetta birtist núna ekki aðeins í samskiptum hans við aðra flokka heldur einnig innan hans eigin flokks, Miðflokksins, þar sem margir hafa fengið sig fullsadda af málþófinu undir hans leiðsögn og forystu.“
Þá bendir Björn á þá staðreynd að fylgi Miðflokksins hafi dregist saman eftir að hafa haldið þinginu í gíslingu með málþófi. Álitsgjafar töldu að með málþófi um þriðja orkupakkann teldi Sigmundur Davíð að fylgið myndi aukast. Annað hefur komið á daginn. Í nýrri könnun MMR kom í ljós að Miðflokkurinn lækkaði um eitt prósentustig. Þá furðar Björn sig á að aðrir þingmenn innan Miðflokksins hafi ekki reynt að hafa vit fyrir formanni sínum.
„Hart var og er deilt í breska þinginu um brexit en þar koma menn sér þó saman um að leysa mál með atkvæðagreiðslu og standa við tímasetningar,“ sagði Björn og bætti svo við á öðrum stað:
„Hve lengi ætla miðflokksmenn að hafa þetta í þessum farvegi? SDG reiknaði með að hann yki fylgið, það minnkar. Hann reiknaði með fjöldafundum á Austurvelli, þangað koma 20 til 50 manns. Misheppnaðri aðför að störfum alþingis hefur ekki verið gerð á seinni árum. Stöðumatið er greinilega mjög brenglað.“