Björgvin guðmundsson er látinn

Björgvin Guðmundsson lést á heimili sínu í gær. Hann var 86 ára. Frá þessu er greint á DV. Björgvin starfaði lengi sem blaðamaður en síðar tók hann þátt í stjórnmálum. Hann var borgarfulltrúi og borgarráðsmaður fyrir Alþýðuflokkinn í tólf  ár.

Á seinni árum ritaði hann fjölda þjóðmálagreina sem birtust í fjölmiðlum. Hin síðari ár beitti hann sér í ríkum mæli fyrir bættum kjörum aldraðra.