Bjúgverpill missir marks

Björgólfur Thor Björgólfsson var talinn hafa með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar í Landsbanka Íslands fengju upplýsingar um umfangmiklar lánveitingar og einnig að Björgólfur Thor hafi brotið reglur um yfirtöku.

Hérðasdómur Reykjavíkur vísaði í morgun frá hópmálsókn gegn Björgólfi Thor. Dómurinn telur stöðu hluthafa of ólíka til að hægt sé að höfða hópmál. Málsókninni hefur áður verið vísað frá af sömu ástæðu.

Lögmaður málsóknarfélaganna segir að þessum úrskurði Hérðasdóms Reykjavíkur verði vísað til Hæstaréttar. Þess má geta að Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins er einn helstri hvatamaður að þessari málsókn og hefur Vilhjálmur viðhaft stór orð vegna málsins.

rtá