Illugi Gunnarsson, fyrrverandi menntamálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins til margra ára, var tilnefndur af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. í maí. Sem formaður stjórnarinnar fær hann 252 þúsund krónur á mánuði í laun. Einn stjórnarfundur er í hverjum mánuði og greiðir félagið fyrir flug Illuga frá Reykjavík til Ísafjarðar á fundina auk uppihalds.
Þetta kemur fram í svari Orkubús Vestfjarða ohf. við fyrirspurn Stundarinnar um málið. Illugi var kjörinn í stjórn á aðalfundi félagsins 15. maí. Tók hann við af Viðari Helgasyni, sérfræðingi hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem gegnt hafði starfi formanns stjórnar frá 2011. Laun formanns voru hækkuð úr 240 þúsund krónum á sama aðalfundi og þegar Illugi var skipaður í stjórn.
Nánar á
https://stundin.is/grein/7631/