\"Ég hef talað um það í mínum þingflokki og við formenn annarra flokka og forseta Alþingis að það þarf að auka gegnsæi um þessa hluti,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í téðri frétt ríkismiðilsins.
\"Í fyrsta lagi tel ég að það eigi að hafa þessar upplýsingar miklu opnari en verið hefur. Ég tel eðlilegt að Alþingi birti þessar upplýsingar með skipulögðum hætti þannig að þetta sé aðgengilegt almenningi,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra af sama tilefni og bætir við: \"Þetta tengist auðvitað því að Alþingi hefur ekki heyrt undir upplýsingalög með sama hætti og stjórnsýslan og ég hef lagt fram hugmyndir um að við breytum því þannig að allavega hluti starfsemi Alþingis heyri undir upplýsingalög í framtíðinni og ég tel að það sé til bóta.“
\"Ég býst við því að það verði skerpt á reglunum hvað þingið varðar og eins höfum við verið með það í stjórnarsáttmálanum að það væri eðlilegt að það væri opnari aðgangur að bókhaldinu,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra við ruv.is af þessu tilefni.
Bjarni Benediktsson, flokksformaður Ásmundar ökuþórs er gagnrýninn á eyðslu þingmannsins á kostnað ríkisins - og skilur ekki af hverju hann vill ekki nota fremur bílaleigubíla, sem Ásmundur hefur sagt vera of lélega fyrir sig: \"Mér finnst það engin rök fyrir því, ef það er hægt að fá fram sparnað og hagræði við að hjálpa þingmönnum að sinna störfum sínum, þá verða þingmenn að taka þátt í því finnst mér,“ segir Bjarni.
„Ég hef sjálf tekið bílaleigubíla þegar ég fer á fundi úti á landi,“ segir Katrín og bætir við: \"Þingmenn þurfa að sækja ýmsa viðburði út á land þannig að ég tel eðlilegt að það séu skýrar reglur og að þingmenn geri grein fyrir því þegar þeir leggja út kostnað og fái hann endurgreiddan í takt. Og það hafa verið gefin út tilmæli að þingmenn nýti sér bílaleigubíla í þessum tilgangi og mér finnst það skynsamlegt.