Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf. er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins, segir á vef mbl.is.
Þrír voru í kjöri auk Bjarnheiðar eða þeir Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Geysis og Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line Iceland.
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður Rauðku ehf. dró framboð sitt til baka.
Bjarnheiður lauk prófi sem rekstrarhagfræðingur með sérhæfingu í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja frá Fachhochschule München 1994. Hún stofnaði ferðaheildsalann Katla Travel ásamt Pétri Óskarssyni árið 1997.
Bjarnheiður tekur við af Grími Sæmundssyni, forstjóra Bláa lónsins. Bjarnheiður var stundakennari við Háskóla Íslands og kenndi við Ferðamálaskóla Kópavogs.